Á leið til Mexico
Posted by kristjan
Á leiðinni yfir til Mexíkó
Í dag förum við yfir landamærin til Mexikó. Við höfum fundið litla landamærastöð sem á að vera þægilegt að fara yfir, ekki langar biðraðir. Við höfum keypt nokkrar bækur um Mexíkó þar á meðal eina sem heitir Mexican Camping. Bók þessa skrifuðu hjón sem hafa ferðast vítt og breitt um Mexíkó í alls konar farartækjum í fjölda mörg ár. Margir hafa látið í ljós áhyggjur af öryggi okkar og í ljósi þessa langar mig til þess að vitna í kaflann í bókinni sem fjallar um öryggi.
Lausleg þýðing.
Ástæða þess að tjaldstæði í Mexícó eru ekki yfirfull af fólki frá Bandaríkunum er vegna þess að fólk óttast um öryggi sitt. Hið óþekkta er oft ógnvekjandi, til dæmis halda margir Evrópubúar að Bandaríkin séu meðal ofbeldisfyllstu staða heims á meðan staðreyndin er sú að flestir Bandaríkjamenn verða aldrei varir við neitt ofbeldi.
Við erum sannfærð um að Mexicó er ekki hættulegra land en Bandaríkin eða Kanada. Við höfum aldrei orðið fórnarlömb nokkurs ofbeldis og engu hefur verið stolið frá okkur (ef við undanskiljum einhverri smápeningum á bensínstöðum). Við höfum talað við fjölda fólks og þau hafa sömu sögu að segja.
Ef það verður einhver pólitískur óróleiki í einhverjum landshlutanum þá er mjög auvelt að forðast þennan hluta með því að fylgjast með fréttum.
Þeirra reynsla af Mexíkönum er sú að þetta er upp til hópa glaðlynt, hjálpsamt, og gestrisið fólk sem gaman er að umgangast. Vissulega þarf að vera varkár þar eins og annars staðar og þau gefa lesendum mjög góð ráð sem við förum að sjálfsjögðu eftir. Það eru tjaldstæði um alla Mexíkó og þau eru öryggir staðir þannig að við gerum ráð fyrir að tjalda fyrir utan þær borgir sem við viljum skoða og svo förum við bara á Rósalind í bæinn eða tökum strætó. Almennings samgöngur eru mjög góðar í Mexíkó og ódýrar.
Þessar frásagnir um öryggi höfum við lesið í öðrum bókum og það eru líka einstaklingar sem hafa ferðast í fjölda mörg ár og jafnvel búið um lengri og skemri tíma í Mexíkó.
Við höfum glaðst mjög við að lesa þetta því Bandarikjamenn eru mjög fordómafullir gagnvart Mexíkó og kannski ekki að furða þegar haft er í huga frásagnir af mexíkönskum gengum í fátækrahverfum stórborga í Ameríku þá einkum Los Angeles.
En hafa ber í huga að þessir fordómafullu Ameríkanar hafa sjálfir aldrei þorað að ferðast um í Mexíkó. Flestir fara rétt inn fyrir landamærin sem gefa kolranga mynd af Mexíkó því þar eru borgir sem ágætt er að forðast vegna þjófnaða og glæpaskríls sem eru að smígla dópi yfir.
Okkur er farið að hlakka mjög til þess að ferðast um Mexíkó og þurfum að fara að herða okkur í spönskulærdómnum svo að við getum gert okkur skiljanlega og ég held að það sé lítil ástæða til þess að hafa áhyggju af okkur.



