Greinar á íslensku
Jólahreingerning
Posted by kristjan
Jólahreingerning.
Við neyðumst til þess að gera jólahreingerningu hérna í Bensa. Ekki neina venjulega jólahreingerningu síðari ára heldur hreinsun Al la Mamma þar sem allt er tekið út úr skápum, litið yfir gagnrýnum augum, því hent sem hugsast getur og ef pabbi kemst ekki í ruslapokan áður en hann fer á haugana þá getur það orðið töluvert magn með óteljandi dýrgripum. Það miklum dýrgripum að þegar unglingsdóttirinn á heimilinu fer að skoða gamlar ljósmyndir og segir
Dýrið í kofanum
Posted by kristjan
O boy, o boy. Það er bara fyrir sannar hetjur að ferðast um í frumskógum. Þvílíkt og annað eins dýralíf. Það er reyndar allt í lagi með þessi stóru, því þau þjást af krónískri feimni og forða sér við fyrstu ummerki um mannaferðir. Vinur okkar í Belíze er leiðsögumaður og fer með fólk inn í frumskóginn þar. Hann var svo heppinn að sjá tvo hlébarða um daginn þá fyrstu í 12 ár! bara svo að þið vitið um hvað ég er að tala. En þau litlu sem eru í raun alls ekki svo lítil þjást ekki af neinnri feimni því miður.
Farsinn heldur áfram
Posted by kristjan
29 Janúar
Dagurinn eftir fór að mestu leyti í það að hvílast og vinna í tölvu. Við sátum bæði við og flokkuðum og skráðum myndir. Guðný er þegar orðin fullbefær í því að flokka og skrá myndirnar á sinni tölvu. Einnig röltum við um hið gríðarlega stóra svæði sem búgarðurinn nær yfir. Þetta er eitt flottasta stæði sem við höfum séð og ekki dýrt þannig lagað séð eða 30 dollur nóttin.
Á leið í svefnstað
Posted by kristjan
Ferðin til Tecate gekk vel en hægt sökum þess að um brattann fjallveg var að fara. Við fundum með hjálp "Finns" (GPS tækið okkar hefur verið skýrt finnur) og landakorta Tecate og að lokum landamærastöðina. Þar var að sjálfsögðu búið að loka innflytjendaskrifstofunni þegar við komum. Nú voru góð ráð dýr og þar sem að græni passinn minn rann út þann dag varð hann að komast í hendurnar á amerískum tollvörðum, svo ég ætti einhverntímann afturkvæmt þangað. Við röltum því að toll hliði ameríkumanna og tjáðum þeim sögu okkar. Þeir töldu þetta ekkert mál og tóku við grænu kortunum. Því var málið leyst í bili og við gátum haldið sem lá leið í svefnstað.



