Hugleiðingar
Posted by Guðný Björk
Mælieiningar
Mikið vildi ég að allur heimurinn kæmi sér saman um mælieiningar. Það myndi a.m.k. auðvelda mér lífið töluvert því ég er algerlega lost í öllum þessum gallonum, mílum, únsum, fetum farinhætum og hvað þetta nú allt saman heitir. Mílurnar eru reyndar farnar að síast aðeins inn, en ef að ég stigi á vikt þá hefði ég ekki hugmynd hvað ég væri þung (enda kannski eins gott)
Hákarlar
Rétt í þessu brunaði nágranninn á tjaldstæðinu framhjá á stóra pikköppinum sínum með mótor bátinn í eftirdragi. Í bátnum stóðu þrír ungir karlmenn og sýndu okkur (ákaflega stoltir) stóran hákarl sem þeir höfðu veitt á stöng og þeir settu í annan ennþá stærri (að sögn) en gátu ekki komið honum um borð vegna stærðar. Ég held að ég verði að endurskoða sjóbaðs ferðir mínar!
Samband við umheiminn
Það er til þessi fína tækni sem gerir húsbíla eigendum (sem og öðrum) kleift að vera tengdir við veraldarvefinn nánast hvar sem er um öll Bandaríkin fyrir sanngjarnan pening á mánuði. Við reyndum að verða okkur út um þessa þjónustu en því miður er það ekki vinnandi vegur þar sem við erum ekki með nafnnúmer í Bandaríkjum. Við reyndum að fá að greiða þessa þjónustu fyrirfram, jafnvel í heilt ár, en án árangurs.
Drengurinn sem var að aðstoða okkur reyndi allt sem hann gat og að lokum bauðst hann til þess að fá þessa þjónustu í gegn um símann sinn gegn því að við borguðum eitt ár fyrirfram og síðan myndi hann bara borga mánaðargreiðslurnar. Okkur þótti þetta einum of áhættusamt bæði fyrir hann og okkur og afþökkuðum gott boð.
Við verðum því að stefna að því að vera í netsambandi a.m.k.einu sinni í viku til þess að demba inn pistlum og myndum og það eru mörg tjaldsvæði komin með þráðlaust net.
Ærandi hávaði 12,07.
Rósalind er því miður biluð. Púströrið er alveg farið. Kristján er búin að reyna að skítmixa þetta fram og til baka en ekkert gengur. Hann hefur meira að segja reynt að fara á verkstæði til þess að sjóða í gatið en þetta reynist of ryðgað. Enginn hefur þennan hljóðkút á lager og það tekur a.m.k. viku að panta.
Við höfum eiginlega ekki tíma til þess að bíða eftir því þar sem við erum á hraðferð upp til Kanada á meðan eitthvað er eftir af sumri. Vitum því ekki alveg hvað við eigum að gera því hún er svo skrambi góð í skreppitúra. Kannski getum við beðið þá um að senda hljóðkút á undan okkur og við svo pikkað hann upp? Vonandi gengur það.
Annars vorum við að panta upp blásanlega kajaka í gegn um netið og fáum þá á morgun eða hinn. Það verður frábært að nota hann til þess að sigla á án og vötnum og jafnvel sjónum.



