Skip to main content

Kafli úr núverandi Mannlífsgrein

Úrdráttur úr greininni

................Það er einlæg trú okkar að mikil meiri hluti fólks í heiminum séu almennilegar manneskjur þrátt fyrir stöðugan fréttaflutning af hinu gangstæða. Við viljum sannreyna að fólk er í raun og veru gott hvar sem á þessari jarðkringlu og með það naívíska hugarfar var lagt af stað og skildi righaldið í það af öllum mætti. Enda hefur svo reynst að við höfum talið okkur jafn örugg að nóttu til í stórborgum USA og í miðborg Reykjavíkur.

Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta ferðalag gæti orðið erfitt þar sem við yrðum tvö saman allan sólarhringin í litlu rými og þurfum stöðugt að takast á við óvæntar aðstæður sem við þekktum ekki. Mörgum þykir ferðalag sem þetta hin mesta fásinna en margir horfa á okkur öfundaraugum og vildu óska sér að þeir gætu gert slíkt og hið sama, en þó einkum vinnufélagar á gjörgæsludeildinni. Þeir skilja öðrum fremur að stutt er milli feigs og ófeigs og því rétt að lifa lífinu í dag en ekki fresta öllum hlutum til síðari tíma sem svo hugsanlega koma ekki.
Marga dreymir um að gera nákvæmlega þetta en skortir kjarkinn og geta ekki yfirgefið öryggið sem fellst í þeirri daglegu rútínu sem þeir hafa búið sér og sínum. Það þarf töluverðan kjark til þess að umturna öllu og hella sér út í aðstæður sem eru gjörólíkar því sem fólk á að venjast. Það er langur vegur milli þess að fara í skipulagðar pakkaferðir á framandi slóðir í stuttan tíma í senn og að þurfa að treysta algerlega á sjálfan sig og félagan í erfiðum aðstæðum sem upp geta komið.
Það yrði klárlega erfitt að skilja sína nánustu eftir á Íslandi en með gæðum nútíma fjarskiptatækni ætti að vera hægt að halda sambandi og fylgjast með daglegu lifi..................

Comments

Blessud. Gaman ad fylgjast

Blessud.
Gaman ad fylgjast med siðunni ykkar og fin mannlifsgreinin.
Kvedja,
Hronn